![Júlía Ólafsdóttir og Solla Eiríksdóttir.]()
Sólveig Eiríksdóttir eða Solla eins og hún er gjarnan kölluð er nýbúin í sóttkví eftir að hafa dvalið í Bandaríkjunum um tíma. Hún er ekki lengur viðriðin Gló nema að því leyti til að vera ráðgjafi þegar kemur að matseðlum. Á dögunum opnaði hún netverslun með dóttur sinni, Júlíu Ólafsdóttur.